Smiðjur - Fyrirlestrar - Lestrarkeppni
Svakalega lestrarkeppnin 2026
er að byrja!
Svakalega sögusmiðjan er skapandi vettvangur fyrir börn þar sem þau læra að hugsa skapandi og búa til sögur, bæði skrifa og teikna.
Svakalega sögusmiðjan heldur skapandi smiðjur fyrir börn um land allt, heimsækir skóla á vegum List fyrir alla og heldur utan um Svakalegu lestrarkeppnina.
Svakalega lestrarkeppnin
Svakalega lestrarkeppnin er lestrarátak fyrir öll börn í 1. - 7. bekk um land allt. Skólar landsins keppast um það hver les mest á tímabilinu 15. september til 6. október 2026. Sá skóli sem les mest fær titilinn Svakalegasti lestrarskóli landsins.
Svakalega sögusmiðjan
Í Svakalegu sögusmiðjunni læra krakkar á aldrinum 8 - 13 ára fjölbreyttar leiðir til að búa til sögur, bæði skrifa og teikna. Smiðjurnar eru haldnar um allt land.
Skólaheimsóknir og fyrirlestrar
Við heimsækjum skóla og tölum um skapandi hugsun, sögugerð og lestur. Atriðið okkar Svakalegar sögur hefur ferðast um land allt á vegum List fyrir alla.
„Nemendur voru rosalega áhugasamir og keppnisskapið tók alveg völdin.“
— Kennari í grunnskóla um Svakalegu lestrarkeppnina
„Það var hvetjandi að taka þátt í kepninni. Vakti mikinn áhuga hjá strákunum.“
— Kennari í grunnskóla um Svakalegu lestrarkeppnina
„Takk kærlega fyrir okkur. Þetta var afar skemmtileg upplifun fyrir okkur öll. Þið voruð svo hressar og náðuð að fanga athygli nemenda mjög vel.“
— Deildarstjóri yngra stigs grunnskóla um Svakalegar sögur, skólaheimsóknir.
„Það voru allir mjög ánægðir með heimsóknina frá ykkur. Held þið hafið gefið kennurum margar hugmyndir, allavega mikið rætt á kennarastofunni.“
— Aðstoðarskólastjóri um Svakalegar sögur, skólaheimsóknir